Ávinningur

Verkefnið byggir á því að það sé aðgengilegra fyrir viðskiptavini að taka mat með sér heim af veitingastöðum. Matur sem ekki klárast þegar farið er út að borða endar oftar en ekki í ruslinu á veitingastöðum. Til að minnka matarsóun hvetja veitingastaðir viðskiptavini sína til þess að taka leifarnar með sér heim og njóta þeirra seinna.

Beinn ávinningur af verkefninu:

  • Minni matarsóun.
  • Öll afgangsolía frá veitingastöðum fer í lífdísilframleiðslu.
  • Allur lífrænn úrgangur frá veitingastöðum fer í jarðgerð.

 

Ávinningur fyrir veitingastaði er sem dæmi:

  • Stuðningur frá Vistorku í gegnum verkefnið.
  • Leyfi til þess að nota merki verkefnisins í markaðsefni.
  • Aðstoð við að fylgja settum lögum um urðun lífræns úrgangs (sjá ný lög um lífrænan úrgang 1. jan 2023).
  • Frí markaðssetning á miðlum verkefnisins (vefsíða, Facebook og Instagram).
  • Nafn veitingastaðarins á lista yfir veitingastaði á vef verkefnisins.
  • Verkefnið styrkir umhverfisstefnu veitingarstaðar ef til er / getur verið upphafspunktur til þess að gera umhverfisstefnu. Verkefnið styður t.d. tvö af heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.